Vefur um samstarf opinberu háskólanna



 

Ráðherra og verkefnisstjórn samstarfsins við undirritun samnings 9. maí 2011Samstarf opinberu háskólanna er tveggja ára átaksverkefni sem hófst haustið 2010. Verkefnið er byggt á stefnuskjali sem gefið var út af mennta- og menningarmálaráðherra þann 9. ágúst 2010. Markmið verkefnisins eru í fyrsta lagi efling íslenskra háskóla, kennslu og rannsókna, í öðru lagi aukin hagkvæmni í rekstri háskóla og í þriðja lagi að tryggja háskólastarfsemi víða á landinu. Verkefnið hefur einnig gengið undir heitinu "háskólanetið".

Aðilar að verkefninu eru Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Landbúnaðarháskóli Íslands og Hólaskóli-Háskólinn á Hólum.  

Á þessum vef má  finna lýsingu á verkefninu og upplýsingar um virk samstarfsverkefni á sviði náms, rannsókna og stoðþjónustu, auk frétta af framgangi verkefnisins.